Ný leikskóladeild tekin til notkunar í Varmahlíð

Nýja deildin hafi hlotið nafnið Reyniland og er staðsett þar sem áður var pósthús í Varmahlíð. Mynd/BÞ
Nýja deildin hafi hlotið nafnið Reyniland og er staðsett þar sem áður var pósthús í Varmahlíð. Mynd/BÞ

Tekin hefur verið í notkun ný deild við leikskólann Birkilund. Á vef Sveitarfélagsins Skagafjarðar kemur fram að deildin hafi hlotið nafnið Reyniland og er staðsett þar sem áður var pósthús í Varmahlíð. Í dag eru átta börn á Reynilandi ásamt starfsfólki. 

Í október síðastliðnum ákváðu Akrahreppur og Sveitarfélagið Skagafjörður að bregðast við brýnum vanda foreldra ungra barna í Varmahlíð vegna dagvistunarmála. Þá varð ljóst að dagforeldri sem starfað hafði á svæðinu myndi láta af störfum. 

Hin nýja deild var opnuð þann 17. mars og komu af því tilefni fulltrúar úr stjórn foreldrafélags Birkilundar og færðu leikskólanum gjafir. „Á Könglaland gáfu þeir Playmo leikföng, lego duplo kubba á Kvistaland og bækur, myndavél og geislaspilara á Reyniland. Við þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir þessar veglegu gjafir,“ segir í fréttinni. Þá var haldið opið hús af þessu tilefni þriðjudaginn 22. mars. 

Í frétt sveitarfélagsins kemur fram að verktakinn við framkvæmdirnar hafi verið Trésmiðjan Borg og liggur endanlegur kostnaður ekki fyrir. Kostnaðurinn muni skiptast á milli sveitarfélaganna á svæðinu. Framkvæmdum við lóð lýkur í vor með frágangi og uppsetningu á leiktækjum sem er verið að leita tilboða í.

Fleiri fréttir