Ný upplýsingamiðstöð á Sauðárkróki
Gallerí Lafleur opnar nýja upplýsinga-fræðslu- og menningarmiðstöð á Aðalgötu 20 á Sauðárkróki í upphafi Sæluviku sunnudaginn, 28. apríl nk. Í galleríinu verður boðið upp á aðgang að internet kaffi og fræðslumyndbönd munu rúlla allan daginn og einnig verður kynning á ferðaþjónustustarfsemi, sem og menningartengt starf verður í hávegum haft í nýju upplýsingamiðstöðinni sem og tengslin ræktuð við þjónustuaðila í héraðinu.
Laugardaginn 27. apríl kl. 15.00 verður stutt kynning á starfseminni og boðið upp á vöfflukaffi. Opið verður í Sæluviku frá 29. apríl til 5. maí alla virka daga kl. 12.00 - 20.00, sem og á kvöldin og um helgar eftir viðburðum.
Viðburðadagatal:
Sunnudagur, 28. apríl kl. 15.00-17.00 Opnun Upplýsingamiðstöðvar með kaffiveitingum, kynningarmyndböndum og fræðslu. Tekið við frjálsum framlögum.
Mánudagur, 29. apríl kl. 20.00 Upplestur og tónlistarflutningur - Hilmir Jóhannesson og Benedikt S. Lafleur lesa úr nýjum ljóðabókum. Lifandi tónlist í höndum ungra tónlistarmanna. Aðgangur ókeypis! Kaffi-veitingar í boði. Tekið við frjálsum framlögum.
Þriðjudagur, 30. apríl kl. 20.00 Byrjendanámskeið í Sahaja yoga. Benedikt S. Lafleur kynnir mjög öfluga hugleiðslutækni sem kemur á jafnvægi í líkama og sál, heilar og skapar forvörn gagnvart hinum ýmsu meinum. Aðgangur ókeypis! Boðið upp á te í lok hugleiðslu gegn frjálsum framlögum.
Miðvikudagur, 1. maí kl 20.00 Þýðing og gildi talnanna í lífi okkar og þroska. Benedikt S. Lafleur talnaspekingur fjallar almennt um gildi talnanna í nafni okkar, fæðingu og lífshlaupi. Nokkur undirstöðuatriði rædd og grunnur lagður að byrjendanámskeiði fyrir þá sem það kjósa, laugardaginn 4. maí og síðar. Þátttakendur geta fengið bæði útprentaða greiningu á staðnum og einkaviðtal þá eða síðar gegn sanngjörnu gjaldi. Kaffiveitingar á staðnum. Aðgangur ókeypis! Tekið við frjálsum framlögum.
Fimmtudagur, 2. maí kl. 20.00 Sjóböð, allra meina bót! Benedikt S. Lafleur ræðir um lækningagildi sjóbaða á grundvelli vísindarannsókna og gefur góð ráð til þeirra sem hyggjast prófa sjóböð. Í framhaldinu verður hægt að fara í sjóbað á sunnudaginn undir leiðsögn Benedikts. Aðgangur ókeypis! Tekið við frjálsum framlögum.
Föstudagur, 3. maí kl. 20.00 Bíó. Sýnd verður heimildarmynd e. Jón Karl Helgason, með þátttöku Benedikts S. Lafleur, Sundið. Myndin var tilnefnd til Edduverðlauna í ár. Eftir mynd mun Benedikt ræða við áhorfendur um myndina og svara spurningum þeirra þar að lútandi. Hægt verður að kaupa og/eða panta eintak af myndinni á staðnum. Vegna fárra sæta er mikilvægt að panta sæti tímanlega. Aðgangur kostar 1.000 kr. Kaffiveitingar í boði hússins.
Laugardagur, 4. maí kl. 10.00-16.00 Byrjendanámskeið í talnaspeki í Gallerí Lafleur. Verð kr. 9.000 kr. Veitingar og öll gögn innifalin, (send daginn áður), sem og mappa og sérstakt viðurkenningarskjal. Þá geta þátttakendur fengið fjölda greininga fyrir sig og aðra að kostnaðarlausu.
Sunnudagur, 5. maí kl. 11.00-12.00 Sjóbað fyrir byrjendur v Nýja Garð. Aðgangur ókeypis. Þátttakendum er ráðlagt að mæta á fyrirlestur Benedikts um sjóböð fimmtudagskvöld, en annars hafa samband varðandi undirbúning fyrir baðið á sunnudag, sérstaklega þegar byrjendur eiga í hlut.