Nýir lyftustólar í setustofu sjúkrahúss HVE á Hvammstanga

„Þessir stólar eru mjög vinsælir til að hvíla lúin bein, láta fara vel um sig, hlusta á góða sögu, spjalla eða bara draga ýsur,“ segir um nýju lyftustólana á sjúkrahúsi HVE, á vef Norðanáttar.
„Þessir stólar eru mjög vinsælir til að hvíla lúin bein, láta fara vel um sig, hlusta á góða sögu, spjalla eða bara draga ýsur,“ segir um nýju lyftustólana á sjúkrahúsi HVE, á vef Norðanáttar.

Nýlega voru keyptir tveir lyftustólar í setustofu sjúkrahúss HVE á Hvammstanga. Var það gert fyrir ágóðann af opnun kaffihússins Kaffi Kandís á sjúkrahúsinu, sem er gert tvisvar á ári, annars vegar þegar litli jólabasarinn er haldinn í nóvembermánuði og svo hins vegar á vormánuðum samhliða listsýningu sem sýnd er á gangi sjúkrahússins. Hefur þetta verið aðalfjáröflun fyrir félagsstarfið sem fer fram á sjúkrahúsinu, sem er bæði fyrir vistmenn og dagþjónustufólkið. norðanátt.is greinir frá.  

„Ágóðanum hefur verið varið í kaup á hinum ýmsu hlutum, sem komið hafa sér vel fyrir félagsstarfið, eins og t.d. tifsög, ryksugu henni tengdri og myndavél. Nú nýlega voru keyptir tveir lyftustólar sem eru staðsettir í setustofunni á sjúkrahúsinu. Þessir stólar eru mjög vinsælir til að hvíla lúin bein, láta fara vel um sig, hlusta á góða sögu, spjalla eða bara draga ýsur,“ segir í frétt Norðanáttar. 

Loks þakkar Dagþjónustan þeim fjölmörgu sem hafa styrkt hafa þjónustuna í gegnum tíðina með því að versla á jólabasar og/eða hafa kíkt í kaffi á Kaffi Kandís. „Takk kærlega fyrir stuðninginn, án ykkar hefur þetta ekki verið hægt,“ segir loks á vefnum en þar má skoða fleiri myndir af nýju stólunum. 

Fleiri fréttir