Nýjasta NARS

Jólalínan frá NARS förðunarvöruframleiðandanum var kynnt í vikunni og varð þess valdandi að við hérna í heimsveldi Fab neyðumst til að tala á innsoginu næstu dagana!!! Sjaldan höfum við séð jafn töff og öðruvísi hönnun á förðunarvörum og munu margar svefnlausar næturnar fara í það á næstunni að finna út hvernig við náum að nurla saman fyrir öllu safninu þegar það kemur út!!

Það sem er svo einstaklega töff við jólalínu NARS þetta árið er að innblásturinn sækja þau í  Andy Warhol og þrjár stærstu listagyðjurnar hans:  Edie Sedgwick, Debbie Harry og Candy Darling, og prýða umbúðirnar og meira að segja innihald þeirra nokkur af þekktustu listaverkum snillingsins!!!

Línan skiptist í tvær línur: The Pop Art línan kemur út í október og verður eingöngu til sölu hjá Sephora. Línan mun innihalda skæra og skemmtilega liti sem fær Fröken Fabjúlöss til að ráðast í það verkefni að finna útsendara nálægt Sephora til að fara og redda svona eins og nokkrum eyelinerum eða svo! Seinni hluti línunnar- The Factory- kemur svo út í nóvember og verður aðgengilegur í völdum stórverslunum, en orðið á götunni er að sú lína verði aðeins mýkri og mattari, en meðfram þessari línu verður svo hægt að kaupa förðunartöskur skreyttar Andy Warhol listaverkum!

Fröken Fabjúlöss er hægt og hljóðlega að gera sér grein fyrir því að hún mun líklega ekki sofa fyrr en eitthvað úr þessum línum verður komið inn á förðunarborð til hennar....

Fleiri fréttir