Nýliðakvöld Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveit

Björgunarsveitin Skagfirðingasveit að störfum. Ljósm./Skagfirðingasveit.
Björgunarsveitin Skagfirðingasveit að störfum. Ljósm./Skagfirðingasveit.

Hefur þú áhuga á að starfa í björgunarsveit? Næsta þriðjudag, þann 29. september, verður haldinn kynningarfundur klukkan 20:00 í Sveinsbúð, Borgarröst 1. „Við hvetjum alla til að mæta!“ segir á síðu viðburðarins á Facebook.

Heitt verður á könnunni og starfið verður kynnt. „Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja koma og sjá hve fjölbreytt starf okkar er og kynnast skemmtilegum hóp af fólki!“ segir loks á síðunni. 

Fleiri fréttir