Nýr björgunarbátur Húna
Á síðasta aðalfundi Björgunarsveitarinnar Húna í Vestur-Húnavatnssýslu var samþykkt að endurnýja Atlantic 21 bát sveitarinnar. Gengið hefur verið frá kaupum á sérútbúnum harðbotna björgunarbát af gerðinni Ribcraft 585. Stefnt er að því að taka bátinn fomlega í notkun á Sjómannadaginn 5. júní.
Á heimasíðu björgunarsveitarinnar segir að þetta sé mikil fjárfesting því svona bátur kostar vel á sjöttu milljón fullbúinn. Til þess að fjármagna kaupin að hluta verða tveir eldri bátar sveitarinnar seldirog til að ljúka fjármögnun munu félagar í björgunarsveitinni standa fyrir fjáröflunum af ýmsum toga á næstu vikum og verður það nánar auglýst síðar.
Myndir af bátnum er hægt að skoða HÉR