Nýr búningur Tindastóls kynntur - Myndband

Í kjölfar samninga sem Knattspyrnudeild Tindastóls gerði við JAKO á dögunum mun Tindastóll spila í nýjum búningum þetta keppnistímabilið. Stutt er í fyrsta leik tímabilsins og því ekki seinna vænna en að auglýsa nýja búninginn, segir á Tindastóll.is. Ingvi Hrannar, Edvard Börkur og Bjarni Smári tóku sig til og útbjuggu auglýsingu til að kynna nýja búninginn.

 

Innblásturinn sóttu þeir í smiðju Adidas, en Chelsea eru að auglýsa sinn búning á svipaðan hátt.

Myndband Chelsea hér....

http://www.youtube.com/watch?v=rBMZfvYSKrM

 

...og Myndband Tindastóls hér.

http://www.youtube.com/watch?v=sTZt7z3ZXBE

Fleiri fréttir