Nýr samningur um sjúkraflutninga undirritaður
Fyrr í dag rituðu Jón Helgi Björnsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Skagafjarðar undir nýjan samning um þjónustu sjúkraflutninga. Samningurinn sem gildir til næstu 5 ára, nær til sjúkraflutninga í Skagafirði, utan Fljóta sem njóta þjónustu frá Fjallabyggð. Brunavarnir Skagafjarðar munu sjá um framkvæmd samningsins líkt og undanfarin ár.
Á vef Skagafjarðar kemur fram að áralöng hefð er fyrir samstarfi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, sveitarfélagsins Skagafjarðar og Brunavarna Skagafjarðar vegna sjúkraflutninga og eru samningsaðilar því mjög ánægðir með að samkomulag vegna sjúkraflutninga í Skagafirði hafi verið tryggt næstu árin. Helstu nýmæli í samningnum eru að til viðbótar við hefðbundna sjúkra- og millistofnanaflutninga er nú tekið upp svokallað einmenningsviðbragð. Það er vegna millistofnanaflutninga fyrir einfaldari heilbrigðisþjónustu sem krefst ekki sérhæfðs sjúkrabíls.