Nýr útibússtjóri KS á Hofsósi
Árni Bjarkason hefur tekið við starfi útibússtjóra Kaupfélags Skagfirðinga á Hofsósi. Blaðamaður Feykis kom við í Kaupfélaginu á föstudaginn og var Árni þá að ljúka sinni fyrstu vinnuviku. Það var í mörg horn að líta, verið að ganga frá ráðningum fyrir sumarið og svo styttist í að flutt verði inn í endurbætt húsnæði við Suðurbraut, en verslunin hefur verið í bráðabirgðahúsnæði síðan kviknaði í þar fyrir rúmum tveimur árum.
Árni er Siglfirðingur en hefur búið á Hofsósi síðan 1985. Hann hefur starfað við akstur meira og minna síðan 1981, síðustu sex árin hjá Vörumiðlun. En hvað fær gamalgróinn flutningabílstjóra til að söðla svo rækilega um í starfi? – Það er nú fyrst og fremst það að geta verið meira heima hjá sér, segir Árni.