Nýr vefur um Sauðárkrók

Nýverið opnaði á Netinu vefur um Sauðárkrók www.saudarkrokur.is, sem inniheldur helstu upplýsingar og stuttar fréttir úr Skagafirði. Það er Magnús Rúnar Magnússon sem stendur að baki vefsíðunnar en auk Sauðárkrókur.is heldur hann úti vefjunum Héðinsfjörður.is, Austurland.net, Vesturland.net, Elvis.is, Presleyworld.com.

Feykir forvitnaðist um Magnús en hann er 33 ára Reykvíkingur, giftur og  tveggja barna faðir. „Frúin er ættuð frá Siglufirði í báðar ættir og þaðan kemur m.a. áhuginn frá Skagafirði og Tröllaskaga. Ég hef mikinn áhuga á mannlífi og fréttum frá þessum svæðum og hef mjög gaman að því að skrifa fréttir og finna áhugavert efni fyrir þessar vefsíður. Ég lít á þetta sem langtíma verkefni og mikið tækifæri til að kynna þessa staði fyrir ferðamönnum sem eru í leit að gistingu, ferðaupplýsingum o.þ.h. Maður hefur séð mikla uppbyggingu á Siglufirði s.l. ár og tölur sína að sá staður trekkir vel að.  Ég trúi því að Héðinsfjörður verið einn af vinsælli ferðamannastöðum næstu árin, enda ótrúlega fagurt og friðsælt þar.

Ég sé einnig mikil tækifæri í Skagafirði til þess að búa til nýjan ferðavef þar sem ferðamenn geta nálgast helstu upplýsingar frá því svæði“, segir Magnús.

Efni síðunnar verður bæði stuttar fréttir frá Skagafirði, upplýsingar fyrir ferðamenn og íbúa á svæðinu og ætlaður fyrir alla þá sem hafa áhuga á að fræðast nánar um Skagafjörð, og komast í helstu fréttir og menningarviðburði á svæðinu.

Magnús segir að vefurinn sé enn í smíðum, og vantar hann helst ljósmyndir frá Skagafirði og bæjarlífsmyndir frá Sauðárkróki og ef einhver vill birta slíkar myndir á síðunni, þá er stefnan að setja upp ljósmyndagallerí á vefnum. Þá er einnig tekið vel á móti öllum þeim sem vilja koma að fréttum og tilkynningum.

Fleiri fréttir