Nýtt fjarskiptahús á Tindastól
Björgunarsveitin Skagfirðingasveit á Sauðárkróki í samstarfi við Skíðadeild Tindastóls fór fyrir skömmu með nýtt fjarskiptahús í eigu Neyðarlínunnar og undirstöður undir það upp á topp Tindastóls.
Húsið er staðsett rétt hjá Einhyrningi og er staðurinn valinn með mögulega aukna dekkun á Tetra kerfi Neyðarlínunnar í huga, sem allir viðbragðsaðilar á landinu nota.
Eflaust á aukinn búnaður eftir að koma í húsið í framtíðinni sem ætti að ná til staða sem áður hafa verið sambandslausir. Áætlað er að húsið verði tekið í notkun síðar í sumar.
/Bjargari.is