Nýtum þekkingu og reynslu Ólínu
Nýir þingmenn eiga margt ólært í upphafi ferils síns. Þeir þurfa að kynnast því margbreytilega starfi sem fram fer á Alþingi en einnig og ekki síður, að kynnast víðfeðmu kjördæmi og í raun á landinu öllu. Ég get af eigin reynslu sagt að það tekur tíma.
Ólína Þorvarðardóttir hefur setið á Alþingi fyrir Norðvesturkjördæmi frá 2009. Hún hefur af eljusemi og dugnaði aflað sér víðtækrar þekkingar á kjördæminu okkar, þörfum þess og möguleikum.
Ólína er skólamanneskja og jafnréttissinni. Við sem rætur eigum á landsbyggðinni vitum að veigamikil ástæða þess að byggðum hrakar er að atvinnulíf er of fábreytt og ekki við hæfi þeirra sem sótt hafa sér menntun. Einkum eiga menntaðar konur erfitt með að fá starf við hæfi.
Í ályktun frá ársþingi Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar segir m.a.: „Skipulag, samgönguáætlanir og fjölbreytni ferðamáta á að taka mið af þörfum beggja kynja og ávallt skal leitast við að færa þjónustu við fjölskyldur sem næst heimilunum. Sveitarfélögin gegna lykilhlutverki í menntun, forvörnum og félagsmótun barna og ungmenna.
sinna mikilvægri velferðarþjónustu og eru í dýrmætri nálægð við fólkið í landinu öllu. Þar setja konur á oddinn fjölbreytt störf, öfluga innviði, kraftmikið menningarstarf, baráttu fyrir umhverfisvernd og öflugar áherslur í mannréttindamálum. Það er lífsspursmál fyrir hina dreifðu byggðir að ungar konur upplifi tækifæri til að setjast þar að.“
Ólína er í baráttusæti Samfylkingarinnar. Kona af landsbyggðinni og hefur djúpan skilning á mikilvægi þess sem að ofan er rætt. Reynsla hennar og dugnaður er dýrmætt veganesti í baráttunni fyrir jafnrétti og fjölbreyttum möguleikum á landsbyggðinni. Það megum við ekki láta fara forgörðum. Styðjum hana til áframhaldandi setu á næsta kjörtímabili.
Anna Kristín Gunnarsdóttir
Norðvesturkjördæmi