Nýyrðasamkeppni Samtakanna '78

Fjölmörg orð eru til í hinsegin orðaforðanum sem enn hafa ekki fengið íslenska þýðingu, en hinsegin hugtök og orð endurspegla svo sannarlega þá breidd sem er til staðar í hinsegin samfélaginu. Það er mikilvægt að við getum öll talað um hinsegin reynslu og hinsegin líf á móðurmáli okkar. Samtökin ’78 efna því til nýyrðasamkeppni, sem fengið hefur heitið Hýryrði 2015.

Þau orð sem  þarfnast íslensks nýyrðis erueftirfarandi:
Kyntjáning: 

  • Androgynous
  • Butch
  • Femme 

Kynvitund:

  • Agender
  • Androgyne
  • Bigender
  • Gender fluid
  • Non-binary
  • Pangender

 Kynhneigð: 

  • Asexual
  • Aromantic

Ókyngreind frændsemisorð:

  • Frænka/frændi
  • Kærasti/kærasta
  • Mamma/pabbi
  • Sonur/dóttir
  • Vinkona/vinur

Dómnefnd skipuð sérfræðingum í íslensku máli og kynjafræði mun velja bestu orðin, en viðurkenningar verða veittar á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember.

Dómnefnd skipar fjölbreyttur hópur fólks, en þau eru; Ágústa Þorbergsdótti, Gyða Margrét Pétursdóttir, Guðmunda Smári Veigarsdóttir, Setta María, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttirog Örn Danival Kristjánsson.

Allar nánari upplýsingar um orðin og skilgreiningar á þeim er að finna á heimasíðu keppninnar.

Allir þeir sem hafa áhuga á íslenskri tungu og hinsegin menningu eru hvattir til þess að taka þátt og senda inn tillögur að nýyrðum. Keppnin hófst í gær 4. ágúst, en hægt verður að senda inn tillögur að orðum til 4. september næstkomandi á slóðinni samkeppni.samtokin78.is.

/fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir