Óbreyttur afgreiðslutími sundlauga í sumar
Á fundi félags- og tómstundanefndar Svf. Skagafjarðar í síðustu viku var samþykkt að afgreiðslutími sundlauga í Skagafirði í sumar verði óbreyttur frá síðasta sumri. Þá var sviðsstjóra og forstöðumanni íþróttamála falið að gera tillögur að reglum fyrir útleigu sundlauga utan opnunartíma.
Afgreiðslutími sundlauganna verður sem hér segir:
Sundlaugin í Varmahlíð
Mánud. - föstud. kl.10:30 - 21:00
Laugard. og sunnud. kl.10:30 - 18:00
Sundlaug Sauðárkróks
Mánud. - föstud. kl.06:50 - 21:00
Laugard. og sunnud. kl.10:00 - 17:00
Sundlaugin á Hofsósi
Alla daga kl.09:00 - 21:00