Ófögnuður blasti við starfsfólki yngra stigs að Víðigrund 7 í morgun
Hún var ekki góð aðkoma starfsfólks leikskólans Ársala á yngra stigi að Víðigrund 7 í morgun en svo virðist sem einhverjir hafi í skjóli myrkurs gert sig þar heimakomna. Búið var að draga trébekk inn í skot á suðurhlið hússins og voru tveir gaskútar skildir þar eftir. Má ætla að gaskútarnir hafi verið notaðir í þeim vafasama tilgangi að sniffa gas til að komast í vímu.
Ljóskúpull hafði verið brotinn en að sögn Önnu Jónu Guðmundsdóttur leikskólastjóra er fjárhagslegt tjón kannski ekki mikið en áhyggjur hennar beinast fyrst og fremst að þeim sem stunda þessa hættulegu iðju og geta hæglega skaðað sig. Þeir sem þarna voru að verki skildu eftir sig minjagripi í formi sígarettustubba, ælu og blárra handprjónaðra vettlinga en þeirra er hægt að vitja hjá lögreglu.
Það er vægast sagt ógeðsleg tilhugsun að svona mæti börnunum sem koma í leikskólann snemma morguns .
Anna Jóna segir að búið sé að finna eiganda annars gaskútsins en leikskólalóðin liggur að garði hans og biður hún fólk í nágrenni skólans að athuga hvort kút vanti á grillið hjá því.
Myndirnar tók starfsmaður leikskólans.
Einhver sem saknar gaskúts? Skorið hefur verið á slöngurnar þegar kútarnir voru fjarlægðir frá grillunum.