Öll skólastigin í Hjaltadal horfðu saman á sólmyrkvann
feykir.is
Skagafjörður
20.03.2015
kl. 15.49
Í morgun söfnuðust öll skólastigin í Hjaltadal saman í Dalsmynni, þ.e. nemendur Leikskólans, Grunnskólans og Háskólans á Hólum, til þess að horfa saman á sólmyrkvann. „Þarna mættu allir með gleraugu og einn kennari Háskólans var með stjörnukíki sem allir fengu að horfa í,“ segir á vef Leikskólans Tröllaborgar.
Allir skemmtu sér hið besta í frábæru veðri, eins og meðfylgjandi myndir af vef leikskólans Tröllaborgar bera með sér.