„Öll verkefni verða unnin af jákvæðni og gleði“

Fjölmargir íbúar Hofsóss og nágrennis hafa nú tekið höndum saman undir slagorðinu „Byggjum upp Hofsós og nágrenni“ og hyggjast standa fyrir ýmsum verkefnum til bóta fyrir byggðina sína.

Fyrsta verkefninu er þegar lokið, en sjálfboðaliðar ásamt rekstraraðilum tjaldsvæðisins mættu þar annan hvítasunnudag og klipptu niður og snyrtu trén við tjaldsvæðið.

„Byggjum upp Hofsós og nágrenni er tilkomið vegna fésbókarsíðu sem Ingvar Daði Jóhannesson, eigandi Hafs og lands ehf. með meiru, stofnaði. Hans hugmynd með síðunni var að við íbúarnir austan Vatna stæðum þétt saman um betri og bættari byggð á íbúasvæðinu okkar og veittum sveitarstjórn og sveitarfélaginu aðhald,“ segir Margrét Berglind Einarsdóttir, ein af forsvarsmönnum verkefnisins.

Ingvar Daði fékk svo til liðs við sig fjóra aðra einstaklinga til að koma verkefninu af stað og stóð hópurinn nýverið fyrir íbúafundi þar sem allir voru velkomnir, austan sem vestan Vatna. „Fundurinn var virkilega vel sóttur, milli 40 og 50 manns sem mættu. Við áttum ekki von á svona góðri mætingu á fundinn, hún var framar björtustu vonum,“ segir Margrét Berglind ennfremur. Á fundinum var fólki skipt niður í nokkra umræðuhópa og hafði hver hópur ákveðið umræðuefni.

„Tilgangurinn var að fá hugmyndir um hvað fólki fyndist ábótavant og hvað mætti laga Þar kom meðal annars fram hversu ljótur gróðurinn við tjaldsvæðið á Hofsósi væri. Voru rekstraraðilar tjaldsvæðisins, Hildur og Halldór á fundinum. Niðurstaðan var sú að sjálfboðaliðar færu í það með, þeim að fegra svæðið. Var það unnið í samvinnu við Helgu garðyrkjustjóra og er skemmst frá því að segja að verkið var unnið í gær (sl. mánudag, annan í hvítasunnu),“ segir Margrét Berglind.

„Við byrjum á Hofsós og næsta nágrenni en við útilokum engan og ekkert frá verkefninu án frekari skoðunar. Það sem verður unnið að er það sem íbúarnir vilja vinna að. Við verðum að standa saman að uppbyggingunni og hvetjum alla sem áhuga hafa að taka þátt í þessu með okkur,“ segir Margrét Berglind, aðspurð um hvort verkefnið sé bundið við Hofsós.

Hún segir jafnframt að verið sé að vinna úr niðurstöðum frá íbúafundinum og flokka þær niðurstöður sem þar komu fram. Áformað sé að halda næsta fund fyrripartinn í júní. „Sumt getum við gert sjálf en annað ekki, sumu liggur meira á en öðru. Svo gerist nú kannski ekki mikið í sumar þegar fólk er að heiman. En öll verkefni verða unnin af jákvæðni og gleði. Öll neikvæðni er bönnuð og áherslan lögð á uppbyggjandi starf,“ sagði Margrét Berglind að lokum.

Fleiri fréttir