Opið fyrir umsóknir á Gæruna

Opnað hefur verið fyrir umsóknir hljómsveita fyrir tónlistarhátíðina Gæran 2013. Tónlistarhátíðin verður nú haldin fjórða árið í röð í húsakynnum Loðskinns á Sauðárkróki, dagana 16. og 17. ágúst.

„Gæran er lítil hátíð sem leggur áherslu á að bjóða upp á vandaða og fjölbreytta tónlist, ný og upprennandi bönd í bland við reyndari tónlistarmenn,“ segir á heimasíðu tónlistarhátíðarinnar.

Undanfarin ár hafa 59 tónlistarmenn og hljómsveitir spilað fyrir gesti Gærunnar. Í fyrra voru 56 hljómsveitir sem sóttu um og af þeim voru 20 valdar til að stíga á stokk. Áhugasamt tónlistarfólk getur sent email á gaeranmusic@gmail.com eða sent línu í gegnum facebook síðu hátíðarinnar fyrir 1. júní 2013.

Hér má rifja upp stemmninguna á Gærunni 2012.

Fleiri fréttir