Opið hús í Farskólanum
Á morgun, þriðjudaginn 28. maí, verður opið hús í Farskólanum á milli klukkan 19:00 og 20:00. Allir velkomnir.
Þriðjudaginn 28. maí útskrifar Farskólinn nemendur af námskeiðinu ,,Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum" við hátíðlega athöfn í Farskólanum við Faxatorg.
Að útskrift lokinn eða klukkan 19:00 verður opið hús í Farskólanum. Starfsmenn munu kynna þjónustu og ráðgjöf Farskólans næsta skólaár ásamt námskeiðum sem fyrirhugað er að koma á fót. Farskólinn.is segir frá þessu.
Léttar veitingar verða í boði. Allir eru velkomnir.