Opið málþing um söguferðaþjónustu á Kaffi Krók
Samtök um sögutengda ferðaþjónustu heldur félagsfund og málþing í Skagafirði dagana 14. – 16. febrúar. Gestum er boðið á opið málþing sem haldið verður kl. 13 á Kaffi Krók nk. laugardag undir yfirskriftinni Þróunar- og nýsköpunartækifæri í söguferðaþjónustu.
Dagskrá málþingsins er eftirfarandi:
13:00 Málþing hefst : Þróunar- og nýsköpunartækifæri í söguferðaþjónustu
13:05 Áskell Heiðar Ásgeirsson, verkefnisstjóri hjá Markaðsstofu Norðurlands
(Að koma sögu Norðurlands á framfæri við ferðamenn. Titill ekki endanlega ákveðinn)
13:20 Ingibergur Guðmundsson, menningarfulltrúi Norðurlands vestra.
Jakobsstígur hinn nýi - möguleg nýsköpun í söguferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.
13:35 Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, lektor við Hólaskóla.
(Vöruþróun í söguferðaþjónustu. Titill ekki endanlega ákveðinn)
13:50 Kaffi í boði SSF
14:20 Ásborg Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi Uppsveita Árnessýslu
Stöngin inn! - um fyrirhugaða uppbyggingu að Stöng í Þjórsárdal.
14:35 Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri.
Skriðuklaustur - söguferðaþjónusta á Héraði.
14:50 Fyrirspurnir.
15:10 Málþingslok.