Opin Listasmiðja - Art 65,45°N

Aðstandendur klasaverkefnisins "Litli skógur" (Little Wood) standa fyrir opinni listasmiðju í gamla Tengilshúsinu við Aðalgötu, fimmtudaginn 5. maí. Húsið opnar klukkan 20:30. Auk kynningar á starfssemi klasans verður boðið upp á lifandi tónlist, sýnishorn úr stuttmyndum Kvikmyndasmiðjunnar, sushirétti frá Jóni Dan, myndlist, hárgreiðslu frá Kúnst og léttar veitingar.

Fram koma m.a. tónlistarmennirnir Fúsi Ben, Sara Rut, Joe Dubius, Gillon, Sigurlaug Vordís, Guðbrandur Ægir og Gugga.

Ókeypis aðgangur, allir velkomnir.

Fleiri fréttir