Opinn fundur hjá Framsóknarmönnum í dag
Þingmenn og frambjóðendur Framsóknarflokksins boða til opins fundar á Kaffi Krók á Sauðárkróki í dag, mánudaginn 25. febrúar, kl. 20:30. „Grípið tækifærið g komið skoðunum ykkar á framfæri!“ segir í fréttatilkynningu frá flokknum.
Á staðnum verða Gunnar Bragi Sveinsson alþingismaður, Ásmundur Einar Daðason alþingismaður, Elsa Lára Árnadóttir kennari (3. sæti) og Jóhanna María Sigmundsdóttir búfræðingur og nemi (4. sæti).
Allir eru velkomnir.