Opinn fundur um handverksvinnustofu

Handverk úr Húnaþingi vestra. Mynd: KSE.
Handverk úr Húnaþingi vestra. Mynd: KSE.

Opinn fundur fyrir áhugafólk um vinnustofu fyrir handverksfólk í Húnaþingi vestra verður haldinn í Gallerý Bardúsa í kvöld kl. 20:00. Það er áhugafólk um að koma á fót slíkri aðstöðu, þar sem handverksfólk gæti unnið sitt handverk, sem boðar til fundarins.

„Vissir þú að yfir 10 % af íbúum í Húnaþing vestra gera og hanna ýmiskonar handverk,“ segir í auglýsingu frá hópnum, sem birtist í síðasta tölublaði Sjónaukans. Hugmyndin er að á vinnustofunni væri bæði aðstaða þar sem fólk gæti leigt sér rými og unnið með sitt handverk eða hugmyndir sem og aðstaða fyrir ýmis konar námskeiðahald og verkefni.

Markmið fundarins er að kanna áhuga og þörf fyrir slíka vinnustofu hérna í Húnaþingi vestra sem og að fá inn fleiri hugmyndir fyrir verkefnið . Vonandi aðstandendur verkefnisins til að sjá sem flesta á fundinum. 

Fleiri fréttir