Opinn súpufundur í tilefni af atvinnulífssýningu
Til að ræða skipulag atvinnulífssýningarinnar, Skagafjörður - lífsins gæði og gleði, býður Sveitarfélagið Skagafjörður til opins súpufundar á Mælifelli nú í hádeginu og hefst klukkan 12:00. Þar munu skipuleggjendur kynna nánari útfærslu sýningarinnar, verð á básum og aukahlutum, opnunartíma og aðrar praktískar upplýsingar.
Sveitarfélagið Skagafjörður mun í samvinnu við Skagafjarðarhraðlestina og aðra aðila standa fyrir atvinnulífssýningu á Sauðárkróki við upphaf Sæluviku, dagana 28. – 29. apríl nk. Sýningin verður öllum opin en henni er einkum ætlað að draga fram þann fjölbreytileika sem er í atvinnulífi, félagastarfsemi og menningarlífi í Skagafirði.