Opna Icelandairgolfers mótið á Sauðárkróki nk. laugardag

Eitt stærsta golfmót sumarsins hjá Golfklúbbi Sauðárkróks, Icelandair golfers mótið, verður haldið á Hlíðarendavelli nk. laugardag kl. 08:00 en um punktakeppni er að ræða í opnum flokki með forgjöf. Glæsilegir vinningar eru í boði Icelandair og Icelandair golfers fyrir þá sem sýna bestu taktana.

  • 1. verðlaun. Gjafabréf frá Icelandair 40.000
  • 2. verðlaun. 20.000 króna úttekt í Örninn golfverslun.
  • 3. verðlaun 12.000 króna úttekt í Örninn golfverslun.
  • 4. verðlaun 10.000 króna gjafabréf frá Bílahótel.
  • 5. verðalaun 10.000 króna gjafabréf frá Bílahótel.
  • Nándarverðlaun 6/15 holu 10.000 króna gjafabréf frá Bílahótel. 5000. króna úttekt í Örninn golfverslun.
  • Lengsta teighögg 9/18 holu. 10.000 króna gjafabréf frá Bílahótel. 5000 króna úttekt í Örninn golfverslun.

Í lok móts mun Richard Huges golfkennari tilkynna hvaða hola var "Mystery Hole" og mun sá leikmaður með fæst högg á tiltekinni holu fá fría golfkennslu í verðlaun. Hér reynir á þolinmæði keppenda því aðeins þeir geta fengið verðlaun sem verða ennþá í golfskála er verðlaunaafhending fer fram.

Fleiri fréttir