Opnað fyrir utankjörfundaratkvæði þann 16. mars
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu þann 9. apríl nk. hefst við embætti sýslumannsins á Sauðárkróki, Suðurgötu 1, þann 16. mars n.k..
Verður opið fyrir kosningar við embættið sem hér segir:
Frá 16. mars – 25. mars verður opið frá kl. 9:00 – 18:00 virka daga.
Laugardagana 19. mars, 26. mars og 2. apríl nk. verður opið frá kl 10:00 – 14:00.
Frá og með mánudeginum 28. mars nk. verður opnunartími frá kl. 9:00 – 20:00 virka daga og á kjördag verður opið frá kl. 10:00 – 14:00.
Athugið að ekki verður mögulegt að sinna öðrum erindum en kosningum á skrifstofunni eftir kl. 15:00.