Ort í tilefni af afhjúpun mótmælaskiltis

Jón Gissurarson bóndi í Víðimýrarseli komst ekki til að vera við afhjúpun mótmælaskiltis við Arnarstapa sem sagt var hér á vefnum á dögunum. Í fréttinni kom líka fram að Jón hringdi í Hrafn Margeirsson meðan hann hélt ræðu við afhjúpunina og las honum vísur sem Hrafn endurtók jafnóðum fyrir áheyrendur.

Að beiðni Feykis sendi Jón vísurnar, með þeim orðum að "tvímælalaust sé betra að láta vísdóminn ráða og gera þetta af skynsemi." Vísurnar fara hér á eftir:

Mótmælunum legg ég lið
línuna smátt því virði,
henni öll nú höfnum við
heima í Skagafirði.

Hennar mun þó gatan greið
gerð af vísdómsbrunni,
ef að hún fer aðra leið
undir jarðskorpunni.

Fleiri fréttir