Öruggur sigur á Blikum í Lengjubikarnum

Lið Tindastóls hefur unnið alla þrjá leiki sína hingað til í Lengjubikarnum en á laugardag kom lið Breiðabliks í heimsókn í Síkið og reyndist ekki mikil fyrirstaða fyrir lið Stólanna. Lokatölur urðu 96-69.

Stólarnir náðu forystunni strax í byrjun með 3ja stiga körfu frá Helga Margeirs og síðan gerði Darrel Lewis einu körfu sína í leiknum og síðan mallaði Tindastólsrútan þetta af öryggi í gegnum leikinn. Allir leikmenn fengu fínan tíma til að sýna listir sínar og aðeins Arnþór, Helgi Margeirs og Darren Townes sem spiluðu meira en 20 mínútur í leiknum.

Staðan eftir fyrsta leikhluta var 21-14 og síðan 46-27 í hálfleik. Blikarnir þvældust lítið fyrir Stólunum í þriðja leikhluta sem vannst 31-17 og staðan því 77-44 fyrir lokafjórðunginn. Þá tóku Blikarnir sig til og minnkuðu muninn og 27 stiga sigur því uppskeran að leik loknum.

Einn leik eiga Stólarnir eftir í riðlakeppni Lengjubikarsins og verður hann leikinn í Keflavík næstkomandi föstudagskvöld en Suðurnesjamenn hafa unnið báða leiki sína hingað til; eiga eftir leikinn gegn Stólunum og erfiðan leik úti gegn FSu. Átta liða úrslit verða síðan leikin 29. september.

Fleiri fréttir