Ósk um hjólabrettagarð
feykir.is
Skagafjörður
03.09.2015
kl. 15.15
Á síðasta fundi byggðarráðs Svf. Skagafjarðar þann 27. ágúst sl. var lagt fram bréf frá þeim Gunnari Þorleifssyni, Ásgeiri Braga Ægissyni, Óskari Halli Svavarssyni og Auðuni Elí Midfjord Jóhannssyni, 14 ára unglingum sem óska eftir að sveitarfélagið hlutist til með að setja upp hjólabrettagarð á Sauðárkróki.
Í bréfinu kom fram að engin boðleg aðstaða væri fyrir hendi í dag. Byggðarráð tók jákvætt í erindið og vísaði því til afgreiðslu félags- og tómstundanefndar og mæltist til þess að nefndin hefði samband við bréfritara um hugmyndir þeirra varðandi aðstöðu.