Óskilamunir í Ráðhúsinu
Þann 7. febrúar s.l. fundust sjóngleraugu og derhúfa á Bárustígnum á Sauðárkróki og getur sá sem telur sig eiga gripina nálgast þá í Ráðhúsi staðarins á opnunartíma milli klukkan 8-16 virka daga. Ýmislegt annað í óskilum.
Að sögn þeirra Siggu og Sísíar í móttökunni er ýmislegt sem gleymst hefur í Ráðhúsinu eða fundist á bílaplaninu fyrir utan s.s. eins og bíllyklar af Opel og KIA sem fundust hér fyrr í vetur ásamt fleiri munum svo sem lyklakippu, húslyklum, grifflum, sólgleraugum, húfu og leðurhönskum. Þá er ótalið hálsmen og hundataumur.
-Frábært ef þessir hlutir lentu á ný í höndum eigenda sinna, segja þær Sigga og Sísí, sem taka vel á móti þeim sem kunna að kannast við hlutina.