Öskubusku ævintýrið hjá Unglingaflokki drengja

Unglingaflokkur körfuknattleiksdeildar Tindastóls tók á móti ÍR í undanúrslitaleik sl. þriðjudag. „Sýndu strákarnir okkar hvernig ætti að spila körfubolta og tóku strákana úr Breiðholtinu í kennslustund,“ segir í fréttatilkynningu frá Tindastól en lokatölur urðu 104 – 66. Næst eru strákarnir á leiðinni í úrslitaleikinn í Stykkishólmi á morgun, 25. apríl, og verða mótherjarnir FSu.

„Í liðinu er valinn maður í hverri stöðu, allir frábærir og geðgóðir ungir piltar með frábæran þjálfara. Ekki má gleyma Kára Mar sem hefur staðið með Martín á hliðarlínunni,“ segir í tilkynningunni.

„Þessir strákar byrjuðu tímabilið í október og hafa lent í allskonar veðrum á leið sinni í leiki og á heimleiðinni og hafa þurft að fara krókaleiðir til þess að komast heim eða þurft að gista einhversstaðar á leiðinni, en það truflaði þá nú ekki að leggja af stað í ferðalögin vitandi það að annað hvort kæmust þeir ekki heim eða þyrftu að fara krókaleið til að komast heim og sýnir þetta okkur hvað þetta eru miklir keppnismenn og kalla ekki allt ömmu sína,“ segir í tilkynningunni.  

Ennfremur segir að gengi strákanna í vetur megi líkja við einskonar öskubusku ævintýri, þeir hafi unnið alla sína leiki og fara taplausir í gegnum tímabilið.

„Fyrsta sætið er þeirra alveg skuldlaust. Ekki skemmdi það fyrir að strákarnir áttu stórleiki í vetur og var það hin besta skemmtun að fylgjast með þeim í vetur. Margir bæjarbúar að tala um þessa stráka og gengi þeirra í vetur sem yljar manni og ekki skemmir það hvað unga kynslóðin tekur eftir gengi þeirra og eru þeir þeim til fyrirmyndar.“

Leikurinn hefst  kl. 19:00 en fyrir þá sem ekki komast í Hólminn að styðja drengina til dáða þá verður leikurinn sýndur beint á www.sporttv.is.

Áfram Tindastóll!

Fleiri fréttir