Óþekktarormar fara í sveit
Nokkrir óþekktarormar verða á næstunni sendir í sveit í Húnavatnssýslum á vegum vinsæls þýsks raunveruleikaþáttar. Bóndinn Júlíus Guðni Antonsson, vonar að ungmennin geti hjálpað til við sauðburð. Raunveruleikaþátturinn Ströngustu foreldar í heimi er sýndur víða um heim og nýtur töluverðrar hylli. Þar eru ódæl börn send til fósturforeldra á framandi slóðum í skamman tíma í þeirri von að þau læri aga og góða siði.
Stjórnendur þýsku útgáfunnar af þáttunum höfðu samband við hjónin á Auðunnarstöðum í Vestur-Húnavatnsýslu og fengu þau til að taka á móti börnum sem eru svo baldin að foreldrar þeirra hafa gefist upp á að siða þau til.
Júlíus Guðni, segir að þau hjónin á bænum séu ekki sérstaklega ströng. „Við teljum auðvitað bæði að öllum unglingum og börnum sé hollt að búa við ákveðinn aga og reglur svo fólk viti hvar mörkin eru á hlutunum. Þannig líði öllum best,“ segir Júlíus.
Sjá nánar á ruv.is