Ótthar Edvarsson ráðinn umsjónarmaður íþróttamannvirkja

Ótthar Edvardsson hefur verið ráðinn umsjónarmaður íþróttamannavirkja á Frístundasviði sveitarfélagsins Skagafjarðar. Hann var valinn úr hópi 14 umsækjenda. Tuttugu og tveir sýndu starfinu áhuga en 7 þeirra drógu umsókn sína til baka. Ótthar hefur starfað í 6 ár sem yfirmaður afrekssviðs íþróttafélagsins Vals í Reykjavík. Hann hefur góða reynslu af stjórnun og rekstri. Ótthar er giftur og fjögurra barna faðir.

Hann kemur til starfa á næstu vikum og er í fréttatilkynningu frá sveitarfélaginu Skagafirði borðinn velkominn til sveitarfélagsins ásamt sinni fjölskyldu.

Aðrir sem sóttu um starfið voru:

Árni Björn Björnsson

Ásgeir B. Rúnarsson

Benedikt Sigurðsson

Björg Snjólfsdóttir

Hörður H. Guðbjörnsson

Ingvar Björn Ingimundarson

Kristján Eiríkur Pétursson

Kristján Geir Jóhannesson

Kristmar Geir Björnsson

Magnús Már Jakobsson

Ragnar Páll Ólafsson

Reynir Kárason

Sigurður Guðjón Jónsson

Valdemar Valdemarsson

Fleiri fréttir