Óvæntur vorboði

Það var heldur óvæntur vorboði sem beið Halldórs bónda Hálfdánarsonar bónda á Molastöðum í Fljótum þegar hann fór í fjárhúsin á laugardagsmorguninn. Gemlingur einn hafði þá fært húsbónda sínum svart hrútlamb í afmælisgjöf.

„Þetta er óvenju snemmt og erum við nú ýmsu vön í þessum efnum. Þess má geta að við fósturtalningu var móðirin, sem er gemlingur og á eftir einn mánuð í fyrsta afmælisdaginn sinn, talin geld. Þetta kom því verulega á óvart,“ sagði Halldór í samtali við Feyki í morgun.

Á myndinni eru systkinin Katla Huld og Tristan, yngstu börn Halldórs og Maríu Númadóttur, bænda á Molastöðum. Þau voru að vonum glöð með þennan ljúfa vorboða. Líklegt er þó að lambið verði að bíða nokkrar vikur eftir félagsskap annarra lamba, þar sem „holskeflan“ í sauðburði á ekki að fara af stað fyrr en í maíbyrjun, að sögn þeirra Halldórs og Maríu.

Fleiri fréttir