Óvenju sterk úrtaka í Meistaradeild Norðurlands
Úrtökumót fyrir KS-deildina verður haldið í kvöld 1. febrúar í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki og er búist við hörku keppni. –Þátttaka fór fram úr björtustu vonum aðstandenda og verður þetta óvenju sterk úrtaka bæði hvað varðar knapa og hross segir Guðmundur Sveinsson hjá MN.
Fimmtán knapar munu berjast um þau sex sæti sem laus eru og hefst veislan kl: 20:00. Fólk er hvatt til að fjölmenna á bekkina og fylgjast með skemmtilegri keppni og til að bæta stemninguna er frítt inn í kvöld.