Pálínuboð Nes Listamiðstöðvar

Nes Listamiðstöð býður þér í Pálínuboð, eða "potluck" eins og það útleggst á ensku, miðvikudaginn 11. janúar kl. 18:30. Fjölskyldur eru hjartanlega velkomnar.

„Vinsamlegast taktu með þér rétt á hlaðborðið,“ segir í fréttatilkynningu frá Nes Listamiðstöð. Í hverjum mánuði er haldin veisla þar sem listamenn og stjórn listamiðstöðvarinnar koma saman og slá upp hlaðborði og eru allir boðnir velkomnir. Hver matreiðir einn rétt og tekur með sér og svo eiga allir skemmtilega kvöldstund saman.

Til staðar verða listamennirnir Christin Lutze, Hugo Deverchere, Elsa Di Venosa, Tomoko Ichimura, Dan-ah Kim og Sigbjörn Bratlie og munu þau kynna verk sín.

Fleiri fréttir