Páll Óskar kemur aftur á Gæruna
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar, sem kom fram á tónlistarhátíðinni Gærunni á Sauðárkróki í fyrra er væntanlegur aftur á hátíðina í ár. Verður hátíðin haldin í húsakynnum Loðskinns, líkt og verið hefur, að sögn Adams Smára Hermannssonar og Ásdísar Þórhallsdóttur, sem eru framkvæmdastjórar hátíðarinnar í ár.
Páll Óskar mun koma fram á Gærunni föstudagskvöldinu og hita um leið upp fyrir Pallaball seinna um kvöldið. Þá mun hann halda barnaskemmtun á föstudeginum, enda mæltist hún vel fyrir í fyrra. Nánar verður rætti við þau Adam Smára og Ásdísi í Feyki í næstu viku.