Páll Óskar stígur á svið Gærunnar

Hinn ástsæli söngvari Páll Óskar hefur bæst í hóp listamanna sem stíga á svið Gærunnar tónlistarhátíðar á Sauðárkróki 13. – 15. ágúst. „Það má búast við glamúr og glimmeri í húsnæði Loðskinns þegar Palli stígur á sviðið,“ segir á facebook síðu Gærunnar.

Að tónleikunum loknum á föstudagskvöldinu mun Páll Óskar halda áfram uppi stuðinu á skemmtistaðnum Mælifelli.

https://youtu.be/8d12YLAS444

 

Þær hljómsveitir sem stíga á svið Gærunnar eru:

  • Gillon
  • Óskar Harðar
  • Axel Flóvent
  • Bergmál
  • Hemúllinn
  • Trukkarnir
  • Dalí
  • Röskun
  • Lockerbie
  • Dimma
  • Geirmundur
  • VIO
  • Alchemia
  • Stafrænn Hákon
  • Lára Rúnars
  • Bjartmar Guðlaugs
  • The Roulette
  • Amabadama
  • Páll Óskar

Þá er ekkert annað í stöðunni fyrir tónlistarunnendur en að bíða og láta sér hlakka til en miðasala hefst á næstu dögum Tix.is.

Hægt er að fylgjast með Gærunni a Facebook.

 

 

Fleiri fréttir