Partý hjá Búhöldum
Það er mikið líf og fjör hjá Búhöldum á Sauðárkróki þessa dagana, - ekki nóg með að byrjað var á framkvæmdum á nýjum húsum í vikunni -, því nú er búið að blása í partýlúðrana. Haldin verður vetrarhátíð Búhölda annað kvöld klukkan 19: 00 á Kaffi Krók.
„Við ætlum að borða saman og vera með létt grín og harmonikkuspil. Þá verður einnig happdrætti með góðum vinningum,“ segja þær Unnur og Magga sem komu við á ritstjórn Feykis fyrr í dag. Þetta er í fimmtánda skiptið sem þær stöllur skipuleggja partý Búhölda en upphaflega voru þau úti að sumri til í stórum partýtjöldum. „Við ákváðum síðar að færa þetta inn, koma okkur inn í hlýjuna. Svo fannst okkur betra að færa þetta yfir á vetrartímann þegar flestir væru heima. Þá er þessi tími hentugur, áður en fólk fer í vetrarorlof til sólarlanda.“ Þegar blaðamaður spyr hvernig eigi að kynna þær, svara þær hlæjandi: „Við erum kallaðar partígellurnar.“