Pétur Jesú trúbbar á Kaffi Krók

Pétur Jesú ætlar að koma og skemmta gestum á Kaffi Krók nk. laugardagskvöld. „Pétur er úr hljómsveitinni Buff og er einn af betri trúbadorum landsins en hann verður bara einn og stakur á morgun,“ segir Kristín Magnúsdóttir eigandi Kaffi Króks. Pétur er einnig þekktur fyrir að taka reglulega þátt í júróvision ævintýrinu og er örugglega sá sem oftast hefur verið í júróvision liðinu.

Kaffi Krókur er opinn frá kl. 22 og Pétur verður kominn í gírinn um miðnætti. Jólabjór verður á tilboði til kl. 01.

„Um að gera fyrir fólk að lyfta sér upp – frítt inn,“ segir Kristín í lokin.

 

Fleiri fréttir