Pétur Rúnar fór á kostum með landsliðinu

Á heimasíðu Tindastóls segir frá því að Pétur Rúnar Birgisson og félagar hans í U-15 ára landsliðinu kláruðu Kaupmannahafnarmótið með tveimur sigrum og náðu með því 5. sætinu í mótinu. Pétur fór á kostum í síðasta leiknum.

Eftir sigurleikinn gegn Englendingum léku strákarnir á mót Dönum og sigruðu þá örugglega 78-51. Pétur var næst stigahæstur í leiknum með 18 stig en hreint glimrandi tölfræði, nefnilega 6 fráköst, 6 stoðsendingar og 5 stolna bolta.

Síðasti leikurinn var gegn Værlöse og var það í annað sinn á mótinu sem þér léku við þá, en íslenska liðið tapaði fyrir þeim í riðlinum. Að þessu sinni vannst sigur 73-60. Pétur fór á kostum í þessum leik, varð stigahæstur íslensku strákanna með 24 stig, 8 fráköst, 7 stolna, 3 stoðsendingar og 2 varin skot. Skotnýtingin hans var einnig afburða góð, 8/12.

Fleiri fréttir