Phanton of the Opera í Húsi Frítímans í kvöld
Félagar í Óperu Skagafjarðar ætla að koma saman í Húsi Frítímans í dag klukkan 18:00 og horfa saman á myndina Phantom of the Opera en óperan hyggst setja samnefnd verk upp á Sæluviku.
Eru allir söngvarar í Óperu Skagafjarðar og Draumaröddum Norðursins svo og nemendur í Söngskóla Alexöndru og foreldrar þeirra sérstaklega hvattir til þess að koma og horfa á myndina. En sýningin verður öllu áhugafólki um góða tónlist opin.