Pistill um 100 ára kosningarétt kvenna
Í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna hefur mbl.is fengið til liðs við sig 100 konur til að skrifa 100 pistla um upplifun sína af kosningaréttinum og hugleiðingar á þessum tímamótum. Ein þeirra er Ásta Pálmadóttir, sveitarstjóri í Skagafirði.
„Þegar kosningaréttur kvenna til sveitastjórnar var til umræðu á Alþingi árið 1881 sýndist þingmönnum sitt hverjum. Ætli þeim hafi ekki fundist það skrítin tilhugsun að hafa konur í bæjarstjórn,“ segir Ásta meðal annars í pistli sínum.
„Á 20. öldinni kom fram kona sem sýndi ótrúlega þrautseigju en Vigdís Louise Finnbogadóttir var kjörin fjórði forseti Íslands þann 29. júní 1980, fimm dögum fyrir sextán ára afmælið mitt...Mig langaði svo til að geta kosið þessa konu sem átti ekki sjö dagana sæla og enginn frambjóðandi hefur í forsetakosningum á Íslandi mátt þola eins ítarlega skoðun á einkalífi sínu og hún,“ segir Ásta ennfremur.
Pistil Ástu í heild sinni og hina 99 pistlana má lesa á þessari slóð.