Rafmagnstruflanir í Húnaþingi vestra í nótt

Mynd:rarik.is
Mynd:rarik.is

Í nótt, aðfaranótt 3. júlí, verður viðhaldsvinna í aðveitustöð Hrútatungu. Á þeim tíma verður Húnaþing vestra rekið á varaafli og á varaleiðum. Það þýðir að rafmagnstruflanir verða um miðnætti og að vinnu lokinni, um kl. 6 um morguninn. Ekki er hægt að útiloka langvarandi rafmagnsleysi þennan tíma.

Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Norðurlandi í síma 528 9690 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir