Rampurinn í smábátahöfninni steyptur
Það viðraði vel fyrir byggingaiðnaðarmenn á Sauðárkróki í gær þegar rampurinn í nýju smábátahöfninni var steyptur en lengi hafði verið stefnt að steypuvinnu þennan dag. Mesta fjara vorsins var einmitt þá en þó hefði verið hægt að færa verkið yfir á daginn í dag ef þannig hefði viðrað, að sögn Jóns Árnasonar hjá verktakafyrirtækinu Firði sem sér um jarðvinnsluþátt verksins. Vegna þessarar lágu sjávarstöðu stóð rampurinn á þurru og því hægt um vik að steypa eins og til stóð.
Steypan sem notuð var er einstaklega sterk og hefur þann eiginleika að harðna þrátt fyrir að sjórinn flæði yfir aftur en kapphlaup var einmitt háð við Ægi sjálfan um að fylla mótin af steypu áður en flæddi aftur að. Þar hafði Knútur Aadnegard og hans vaski flokkur betur svo ekki sé minnst á Baldur múrara og Steypustöð Skagafjarðar.
Vinna við smábátahöfnina hefur gengið vel og verður brátt farið að leggja flotbryggjurnar sem undafarið hafa verið fluttar frá framleiðenda á Krókinn.
.