Rannsókn ekki enn lokið

Mikill málafjöldi og mannekla hjá embætti ríkissaksóknara hefur orðið til þess að rannsókn á alvarlegri líkamsárás á Hólum í Hjaltadal fyrir tæpu ári er ekki enn lokið. Þó liggur fyrir játning í málinu. Vísir.is greinir frá þessu.

Freyja Þorvaldardóttir, sem þá var nemandi við Hólaskóla, var sleginn í andlitið með hurðarhúni í mars á liðnu ári. Sjö tennur brotnuðu í munni Freyju og hefur hún þurft að ganga undir fjölmargar aðgerðir í kjölfar árásarinnar. Freyja sagði í samtali við Vísi að leiðinlegt væri fyrir þá, sem verði fyrir árásum á borð við þessa, að þurfa að bíða svo lengi eftir að mál þeirra sé tekið fyrir. „Það er stórt skref í bataferlinu að klára þetta fyrir utan allt annað sem maður er að vinna í. Þetta er bara sorglegt,“ sagði Freyja.

Fulltrúi rannsóknarlögreglunnar á Akureyri staðfesti við Vísi að málið hefði verið sent embætti Ríkissaksóknara fyrir nokkru. Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissaksóknara eiga öll líkamsrásármál eigi að vera í forgangi og er vísað í fyrirmæli ríkissaksóknara um viðmiðunartíma í því samhengi. Þar kemur fram að í nauðgunarmálum sé miðað við að meðferðartími sé ekki lengri en 60 dagar og 90 dagar í tilfelli líkamsárásarmála. Sá fyrirvari er þó gerður að rannsóknarhagsmunir og sérstakar ástæður geti lengt meðferðartímann.

Í máli Freyju liggur þó játning fyrir og fátt sem bendir til þess að lengja hafi þurft meðferðartíma málsins. Vísir fékk þau svör frá ríkissaksóknara að mikill málafjöldi og mannekla hafi leitt til þess að embættið geti ekki haldið sér innan þessara viðmiðunarmarka í öllum málum.

Árásin átti sér stað þann 12. mars á síðasta ári. Síðan eru liðnir 317 dagar og málið því komið 227 daga fram yfir viðmiðunartíma ríkissaksóknara í líkamsárásarmálum.

Fleiri fréttir