Ráslisti þriðja móts KS-deildarinnar

Þriðja mót KS-deildarinnar verður haldið á morgun miðvikudaginn 10. apríl kl: 20:00 í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki.  Keppt verður í tölti að þessu sinni en samkvæmt heimasíðu reiðhallarinnar verður hart barist og eru mjög góð hross skráð til leiks.

Fyrir þetta mót er Ísólfur Líndal Þórisson efstur í stigakeppni knapa.

Ráslisti fyrir tölt í KS-deildinni:
1. Tryggvi Björnsson - Birta frá Efri-Fitjum
2. Bergrún Ingólfsdóttir - Kolfinnur frá Efri-Gegnishólum
3. Þórarinn Eymundsson - Taktur frá Varmalæk
4. Elvar Einarsson - Hlekkur frá Lækjamóti
5. Líney María Hjálmarsdóttir - Sprunga frá Bringu
6. Mette Mannseth - Trymbill frá Stóra-Ási
7. Hekla Katarína Kristinsdóttir - Vígar frá Skarði
8. Viðar Bragason - Björg frá Björgum
9. Bjarni Jónasson - Randalín frá Efri-Rauðalæk
10. Þorbjörn H. Matthíasson - Hekla frá Hólshúsum
11. Baldvin Ari Guðlaugsson - Orka frá Efri-Rauðalæk
12. Þorsteinn Björnsson - Króna frá Hólum
13. James Faulkner - Jafet frá Lækjamóti
14. Ísólfur Líndal Þórisson - Freyðir frá Leysingjastöðum 1
15. Hörður Óli Sæmundarson - Rá frá Naustanesi
16. Teitur Árnason - Ormur frá Sigmundarstöðum
17. Sölvi Sigurðarson - Starkarður frá Stóru-Gröf ytri
18. Jóhann Magnússon - Oddviti frá Bessastöðum

Fleiri fréttir