Reglur settar um velferðasjóð
Forráðamenn UMSS, UMFT og félagsmálastjóra hafa sent frá sér tillögur að reglum velferðarsjóðs íþróttahreyfingarinnar. Samkvæmt tillögunum mun áhersla sjóðsins vera á að greiða niður ferðakostnað fyrir börn að 18 ára aldri á íþróttamót
Þá mun áhersla verða lögð á að umsóknar- og afgreiðsluferlið sé einfalt, að umsækjendum sé sýnt traust til að meta þörf sína sjálfir og mið tekið af nýlegum neysluviðmiðum og reiknivél í skýrslu Velferðarráðuneytisins. Lögð verður áhersla á að gæta trúnaðar um persónuupplýsingar
.Um tímabundið verkefni er að ræða sem verður endurmetið í árslok. Félags- og tómstundanefnd stendur að því mati ásamt stjórnum UMSS/UMFT.
Á fundi félags- og tómstundanefndar í gær voru reglurnar staðfestar og sendar til Byggðarráðs til kynningar.