Reiðhallarsýning í Þytsheimum

Laugardagskvöldið 2. apríl nk. verður haldin reiðhallarsýning í Þytsheimum á Hvammstanga en þar sem boðið verður upp á mörg áhugaverð atriði og má þar nefna ræktunarbú, stóðhesta, skeið, hópatriði, hestafimleika ofl.

Sýningarnefnd hefur óskað eftir því að allir þeir sem hafa hug á að taka þátt í sýningunni, eða eru með hugmyndir að atriðum hafi samband við nefndarmenn í síðasta lagi föstudagskvöldið 11. mars nk.

Indriði s. 8602056   Sverrir s.6619651
Vigdís s. 8951146 og Guðný s. 8937981

Fleiri fréttir