Reiðmaðurinn í Húnaþingi

Reiðmaðurinn sem er nám í reiðmennsku og hrossarækt er fyrirhugað í Húnavatnssýslu ef áhugi er fyrir hendi en það er námskeiðsröð sem ætluð er fróðleiksfúsu hestafólki. Námið er tilvalið fyrir þá sem vilja auka færni sína í reiðmennsku og þekkingu á hrossarækt og almennu hestahaldi.

Reiðmaðurinn  er á vegum Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands og er tveggja ára nám, sem hægt er að taka samhliða vinnu eða öðru námi. Bóklegi hlutinn er tekinn fyrst og fremst í fjarnámi en einnig er tveggja daga staðarlota á Hvanneyri á önn. Fjórar verklegar helgar eru á hverri önn þar sem unnið er með eigin hest.  Áætlað er að bjóða verklega námið fram í Húnavatnssýslu (Hvammstanga), á höfuðborgarsvæðinu og Hellu. Umsóknir eru tengdar því svæði sem næst er nema annað sé tekið fram. Staðsetningarnar eru þó hafðar með fyrirvara um breytingar.

Megináhersla er lögð á reiðmennsku en einnig er fjallað um almenn atriði sem snúa að hrossarækt og almennu hestahaldi, s.s. fóðrun, frjósemi og kynbætur.

Námið er metið til 33 ECVET – eininga á framhaldsskólastigi og lýkur námskeiðsröðinni með sérstakri viðurkenningu frá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Umsóknafrestur er til 4. júní nk. en nánari upplýsingar um Reiðmanninn og umsóknaeyðublað má finna á www.lbhi.is.

Fleiri fréttir